Stómasamtökin verða með félagsfund fimmtudaginn 5. nóvember.
Fyrirlesari verður Rósa Björg Karlsdóttir en hún hefur gengið í gegnum ristilkrabbamein og er með stóma eftir þann slag. Rósa Björg ætlar að deila með okkur reynslu sinni af hvorutveggja.Meðlimir í Ristilfélaginu verða gestir á fundinum.
Fundur hefst kl. 20:00 í Skógarhlíð 8 en húsið opnar 19:30. Kaffiveitingar verða í boði.


