Stómasamtökin verða með fræðslufund fimmtudaginn 7. nóvember í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8. Stómahjúkrunarfræðingarnir Birna Björnsdóttir og Guðrún Jónsdóttir koma til okkar og segja fréttir af því hvað er að gerast í okkar málum á Landspítalanum.
Húsið opnar 19:30 og kynningin byrjar kl. 20. Við verðum með kaffiveitingar eins og alltaf.
Formaður.