Aðalfundur Stómasamtakanna verður haldinn fimmtudaginn 16. maí í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf. Húsið opnar 19:30 og fundur hefst kl. 20.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og kynna sér starfsemi félagsins á liðnu ári.
Formaður.