Aðalfundur Stómasamtakanna verður haldinn fimmtudaginn 4. maí kl. 20:00 í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Húsið opnar kl. 19:30.
Hefðbundin aðalfundarstörf, dagskráin er hér að neðan:
Aðalfundur 2023
- Formaður setur fund.
- Val á fundarstjóra og fundarritara.
- Ársreikningar og ársskýrsla.
- Stjórnarkjör: Jón Þorkelsson og Eva Bergmann eiga að ganga úr stjórn. Bæði gefa kost á sér áfram. Heiða Rós Gunnarsdóttir Nielsen gefur kost á sér í stað Fanneyjar Lindar Arnarsdóttur og þarf að staðfesta kjör
hennar til eins árs. - Varamenn í stjórn: Jónína Sverrisdóttir og Þorleifur Gíslason eru varamenn. Bæði gefa kost á sér áfram.
- Skoðunarmenn ársreikninga: Sigurður Jón Ólafsson og Ólafur Dýrmundsson gefa kost á sér.
- Önnur mál.