Ben Moon er brimbrettamaður, klifrari, atvinnuljósmyndari og stundar reglulega yoga. Hann lifir viðburðarríku lífi þar sem hann samtvinnar áhugamál sín með atvinnu sinni, ferðast heimshorna á milli og lifir því lífi sem hann óskar sér.
Hann er líka með ristilstóma. En það truflar hann lítið
Þegar hann var 29 ára, árið 2004, greindist hann með ristilkrabbamein eftir að hafa glímt við þráláta þreytu og blóðugar hægðir. Hann taldi þetta vera út af stanslausum ferðalögum og hugsanlegri sýkingu. Lukkulega benti hjúkrunarfræðingur honum á að fara í ristilspeglun og líklegast voru þau ráð honum til lífs.
Við tók langt og erfitt ferli þar sem hann fór í geisla- og lyfjameðferðir og að lokum var fjarlægður hluti af ristli og endaþarmi. Hann varð óneitanlega hræddur við líf með stóma og velti fyrir sér hversu mikil áhrif það hefði á líf hans, sem til þessa hafði verið fullt af ævintýrum. Eftir að hafa kynnt sér allar hliðar ristilstóma komst hann að því að hann gæti haft vissa stjórn á hægðunum með skolun (irrigation) og sá þá að hann gæti klifrað og stundað brimbretti án raunverulegra takmarkana.
Við tók lífið og hann hélt uppi fyrri lífstíl. Hann fór meira að segja að klifra þegar hann var enn í lyfjameðferð, þá með lyfjalegg í hendi. Framhaldið var upp á við og lífið varð óhindrað af lífi með stóma.
Lífsreynslan hafði jafnframt sterk áhrif á hann sem ljósmyndara þar sem hann hefur sagt að nú fangi hann betur mannlegar tilfinningar, en það var eitthvað se
m hann hafið ekki jafn gott skynbragð fyrir áður. Hugsanlega er heilmikið til í þessu þar sem ljósmyndir hans, sem sjá má á www.benmoon.com, virðast sýna einhvern glampa í fólki sem sést sjaldan.
Nýlega gerði Ben myndband sem var nokkurs konar óður til nýlátins hunds sem hann átti, hundsins Denali. Í þessu myndbandi er Denali sögumaðurinn, þar sem hann segir frá lífshlaupi sínu með Ben, frá ævintýrum þeirra og jafnframt veikindum. Myndbandið hefur hreyft við mörgum og því er kjörið að vísa á það hér.
Ben Moon er frábært dæmi um einstakling sem lifir innihaldsríku lífi með stóma þar sem hann sýnir að allt er hægt. Spurningin er einfaldlega hversu stóra drauma fólk hefur.


